Fotbolti.net
15.08.26 - 22:36
Kári Snorrason

Lengjudeild kvenna: Fyrstu mörk Söru fyrir Hauka í átján ár

Grótta skoraði tíu

Lengjudeild kvenna: Fyrstu mörk Söru fyrir Hauka í átján ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þrír leikir voru á dagskrá í Lengjudeild kvenna í dag. Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði tvívegis af vítapunktinum í 3-1 sigri Hauka á FHL.

Voru þetta fyrstu tvö mörk og fyrsti sigur Söru í endurkomu hennar hjá Haukum. Hún lék síðast með Haukum árið 2008.

Topplið Gróttu fór hamförum gegn botnliði Tindastóls á Vivaldivellinum og endaði leikurinn með 10-0 sigri Seltirninga.

Shea Collins var þar hlutskörpust í liði Gróttu og skoraði þrjú mörk, Lovísa Davíðsdóttir Scheving og Nicole Douglas skoruðu þá báðar tvö mörk.

Grótta er með níu stiga forystu á toppi deildarinnar en Tindastóll er á botninum með þrjú stig.

Þá vann Selfoss 3-2 útisigur á Völsungi og eru Selfyssingar í harðri baráttu um 2. sætið. Völsungur er þá í fallbaráttu en liðið er í fallsæti, fimm stigum frá FHL sem er í 8. sæti.
Grótta 10 - 0 Tindastóll
1-0 Katrín Rut Kvaran ('9 )
2-0 Kristín Þóra Birgisdóttir ('12 )
3-0 Maya Camille Neal ('25 )
4-0 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('38 )
5-0 Nicole Douglas ('45 )
6-0 Lovísa Davíðsdóttir Scheving ('47 )
7-0 Shea Collins ('50 )
8-0 Nicole Douglas ('72 )
9-0 Shea Collins ('76 )
10-0 Shea Collins ('90 )

Völsungur 2 - 3 Selfoss
1-0 Auður Ósk Kristjánsdóttir ('18 )
2-0 Aníta Ingvarsdóttir ('45 )
2-1 Ásdís Erla Helgadóttir ('54 )
2-2 Védís Ösp Einarsdóttir ('63 )
2-3 Ásdís Erla Helgadóttir ('68 )

Haukar 3 - 1 FHL
1-0 Sara Björk Gunnarsdóttir ('15)
2-0 Lilja Þórdís Guðjónsdóttir ('16 )
3-0 Sara Björk Gunnarsdóttir ('30)
3-1 Alexis Simone Wright ('63 )
Lengjudeild kvenna: Fyrstu mörk Söru fyrir Hauka í átján ár
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta14+2232
2KR13+1323
3HK14+523
4Selfoss13+722
5ÍA14+721
6Haukar13-321
7Keflavík13+917
8FHL13017
9Völsungur14-512
10Tindastóll13-553
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.