Fotbolti.net
16.08.26 - 06:00
Kári Snorrason

2. deild: Haukarnir tveir sáu um Dalvík - Markaveisla í Garðabæ

Haukur Leifur Eiríksson.

Haukur Leifur Eiríksson.

Canon

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Haukur Leifur Eiríksson og Haukur Darri Pálsson skoruðu bæði mörk Þróttar Vogum í 2-0 sigri liðsins gegn Dalvík/Reyni í 2. deildinni í gær.

Þróttur Vogum er í harðri fallbaráttu en með sigrinum komu þeir sér þremur stigum frá fallsæti. Dalvík/Reynir siglir lignan sjó um miðja deild.

Þá var heldur betur markaflóð í Garðabæ þegar KFG tók á móti KFA. Gestirnir komust í 3-0 stöðu í seinni hálfleik en Garðbæingar minnkuðu muninn í 3-1.

Þá skoraði Esteban Selpa fjórða mark KFA undir lok leiks og gerði nánast út um leikinn. Við það vöknuðu Garðbæingar þó og minnkuðu muninn í 4-3 á lokamínútunum. Þar við sat og vann KFA sterkan sigur.
Þróttur V. 2 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Haukur Leifur Eiríksson ('65 )
2-0 Haukur Darri Pálsson ('90 )

KFG 3 - 4 KFA
0-1 Brynjar Valur Birgisson ('32 )
0-2 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('53 )
0-3 Jawed Abd El Resak Boumeddane ('58 )
1-3 Henrik Máni B. Hilmarsson ('67 )
1-4 Esteban Selpa ('88 )
2-4 Róbert Kolbeins Þórarinsson ('90 )
3-4 Aron Freyr Heimisson ('90 )

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Haukar17+2138
2Selfoss17+932
3Kári17+1829
4Fjölnir17+425
5Víkingur Ó.17-525
6Kormákur/Hvöt17+1024
7Dalvík/Reynir17-321
8Magni17-1221
9KFA17+320
10Þróttur V.17-519
11Hvíti riddarinn17-1116
12KFG17-2913
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.