Fotbolti.net
15.08.26 - 22:26
Kári Snorrason

Börsungar leggja fram þriðja tilboðið í Rodri

Valinn besti leikmaður HM í sumar.

Valinn besti leikmaður HM í sumar.

Canon

Mynd: EPA

Barcelona leggur allt kapp á að sækja spænska miðjumanninn Rodri frá Manchester City.

Félagið hefur nú lagt fram þriðja tilboðið í fyrrverandi gullboltahafann og nemur tilboðið 60 milljónum punda. Viðræður milli félagana eru í fullum gangi og sagðar miða vel áfram.

Fyrsta tilboð Börsunga nam 38,5 milljónum punda en það síðara hljóðaði upp á 55 milljónir punda.

Rodri vill ólmur fara til Barcelona en hann hefur gert City ljóst að hann ætli ekki að endurnýja samning sinn sem rennur út eftir eitt ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.