Fotbolti.net
15.08.26 - 16:54
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd fékk á sig fjögur gegn lærisveinum Amorim

Man Utd fékk á sig fjögur gegn Milan

Man Utd fékk á sig fjögur gegn Milan

Canon

Mynd: EPA

Ruben Amorim og lærisveinar hans í AC Milan unnu 4-2 sigur á Manchester United, fyrrverandi liði Portúgalans, á Tarczynski-leikvanginum í Wroclaw í Póllandi í dag.
Amorim var rekinn frá Manchester United í byrjun árs eftir að hafa stýrt liðinu í rúmt ár.

Hann tók við AC Milan í sumar og mætti sínum gömlu lærisveinum í fyrsta sinn í dag.

Harry Maguire kom United yfir strax á 2. mínútu eftir hornspyrnu Bruno Fernandes en nígeríski vængmaðurinn Samuel Chukwueze jafnaði á 37. mínútu.

Fernandes fékk tækifæri til að koma United aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks en markvörður Milan varði vítaspyrnu hans. Þetta var annar leikurinn í röð þar sem Fernandes misnotar víti.

Patrick Dorgu kom United aftur yfir á 51. mínútu en Milan svaraði með þremur mörkum. Alphadjo Cisse jafnaði á 58. mínútu og Goncalo Ramos kom ítalska liðinu yfir tíu mínútum síðar. Chukwueze lagði upp bæði mörkin.

Ruben Loftus-Cheek bætti fjórða markinu við skömmu síðar og tryggði Milan 4-2 sigur.

Marcus Rashford kom inn á hjá United og lék sinn fyrsta leik fyrir félagið síðan árið 2024. Hann klæddist treyju númer níu en samkvæmt enskum fjölmiðlum er ekki víst að það verði númer hans á tímabilinu.

Rashford hefur einnig verið orðaður við treyju númer fjórtán ákveði hann að vera áfram hjá United.
Ruben Amorim á bekknum í dag

Ruben Amorim á bekknum í dag

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.