Fotbolti.net
15.08.26 - 23:30
Kári Snorrason

Sunderland að kaupa franskan varnarmann

Í leik með U21 liði Frakklands.

Í leik með U21 liði Frakklands.

Canon

Mynd: EPA

Sunderland er að festa kaup á franska U21 landsliðsmanninum Dayann Methalie frá Tolouse fyrir 25 milljónir punda.

Búist er við að hann fari í læknisskoðun á næstu dögum en munnlegt samkomulag á milli félagana er komið í höfn.

Methalie er tvítugur vinstri bakvörður sem er uppalinn hjá Tolouse. Hann spilaði 28 leiki með liðinu sem endaði í 9. sæti í Ligue 1 á síðasta tímabili.

Regis Le Bris vill stækka hópinn fyrir komandi tímabil en liðið endaði í 7. sæti á síðasta tímabili og tryggði sig í Evrópudeildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.