Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 16. október 2020 07:35
Fótbolti.net
Frídeildin heldur áfram að opna nýjar deildir og greiða út frábæra vinninga
Draumalið sérfræðinga Frídeildarinnar fyrir leikviku 5
Draumalið sérfræðinga Frídeildarinnar fyrir leikviku 5
Mynd: Frídeildin
Enski boltinn hefst aftur um helgina eftir landsleikjahlé. Sem betur fer, því það þýðir að Fantasy Premier League byrjar á nýjan leik.

Frídeildin kynnir til leiks Domino´s deildina en hún mun hefjast um helgina, eða frá leikviku 5. Domino´s leggur til frábær verðlaun, bæði fyrir tímabilið í heild sinni og regluleg Hraðmót, en hægt er að sjá verðlaunin með því að fara inn á Frídeildin.is.

Þá lauk þremur Hraðmótum í síðustu leikviku. Í Hraðmóti Steve Dagskrá sigraði Sigþór Eyþórsson með liðið Dreamteam og bar úr býtum 15.000 kr. inneign hjá Netgíró. Í Hraðmóti The English Pub
sigraði Loftur Ásmundsson með liðið Redonkolous Schmuck og vann sér inn veglega inneign sem hentar þyrstum fótboltaáhugamönnum. Í Hraðmóti Pepsi Max sigraði Valdimar Valsson með liðið sitt Madison FC og nældi sér í veglegar birgðir af Pepsi, Pepsi Max og Doritos.

Pepsi Max og The English Pub byrja með ný Hraðmót strax um helgina en næsta Hraðmót Steve Dagskrá hefst næstu helgi. Það er því til mikils að vinna og aldrei of seint að skrá liðið sitt leiks enda
ný Hraðmót alltaf að byrja. Þá taka nýskráðir notendur með sér heildarstigin sín til 1. desember í þau mót sem spiluð verða yfir allt tímabilið, t.d. mót Frídeildarinnar þar sem sigurvegari vinnur 100.000
kr. í beinhörðum peningum.

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS HÉR
Athugasemdir
banner
banner
banner