mið 17. mars 2021 13:00
Magnús Már Einarsson
Johnstone gæti fengið tækifærið eftir meiðsli Pickford
Sam Johnstone
Sam Johnstone
Mynd: Getty Images
Sam Johnstone, markvörður WBA, gæti verið valinn í enska landsliðshópinn í fyrsta skipti fyrir komandi leiki í undankeppni HM.

Jordan Pickford, markvörður Everton, er meiddur og verður ekki með í leikjunum sem eru framundan.

NIck Pope og Dean Henderson munu berjast um að verða aðalmarkvörður í komandi leikjum.

Hinn 27 ára gamli Johnstone hefur átt góða leiki með WBA í vetur og hann gæti nú fengið tækifæri í landsliðshópnum.

Johnstone á leiki að baki með yngri landsliðum Englands en ekki A-landsliðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner