Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 17. maí 2021 20:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Guardiola með vindil syngjandi 'Don't Look Back in Anger'
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: EPA
Manchester City er Englandsmeistari í fótbolta. Liðið var það langbesta í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð.

Svo virðist sem Man City liðið sé að fagna í kvöld því það er myndband í dreifingu á samfélagsmiðlum af Pep Guardiola, stjóra Manchester City, í miklu stuði.

Guardiola er í myndbandinu með vindil að syngja 'Don't Look Back in Anger' sem hljómsveitin Oasis gerði frægt á sínum tíma.

Þetta er önnur hlið á Guardiola sem ekki sést oft enda er hann oftast frekar alvarlegur.

Hægt er að sjá myndbandið hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner