Fara til Færeyja eða Lúxemborgar ef þeir tapa fyrir Ungverjunum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er endanlega ljóst hverjum Víkingur mun mæta eftir einvígið gegn Györ frá Ungverjalandi.

TENGT EFNI
Ísraelskt lið bíður Víkinga ef þeir komast áfram
Íslandsmeistararnir mæta ungversku meisturunum í Györ í 1. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.
Sigurvegarinn úr einvíginu spilar síðan við ísraelska liðið Hapoel Be'er Sheva, en nú er það klárt hvað gerist hjá tapliðinu.
Ef Víkingur tapar einvíginu gegn Györ mun það mæta KÍ/Klaksvík frá Færeyjum eða Atert Bissen frá Lúxemborg í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
Atert Bissen varð deildarmeistari í fyrsta sinn í sögunni á síðustu leiktíð, en KÍ/Klaksvík er eitt sterkasta lið Færeyja með 22 deildartitla.