Fotbolti.net
17.06.26 - 10:31
Brynjar Ingi Erluson

Ísraelskt lið bíður Víkinga ef þeir komast áfram

Ísraelskt lið bíður Víkinga ef þeir komast áfram
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dregið var í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í Sviss í dag. Íslandsmeistarar Víkings fengu að vita hverjum þeir geta mætt.
Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn
TENGT EFNI

Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn

Í gær var dregið í fyrstu umferð forkeppninnar og þar fékk Víkingur ungversku meistarana í Gy?ri ETO.

Það var sterkasti mögulegi andstæðingurinn sem Víkingur gat fengið og því ljóst að liðið á erfitt einvígi fyrir höndum.

Takist Víkingi að komast áfram mun liðið mæta ísraelska liðinu Hapoel Be'er Sheva í annarri umferð.

Hapoel varð ísraelskur meistari í sjötta sinn á síðustu leiktíð og hafnaði einnig í öðru sæti í bikarkeppninni.

Það yrði áhugavert einvígi, en á síðustu leiktíð spiluðu ísraelsku liðin heimaleiki sína á hlutlausum völlum vegna stríðsástandsins í Ísrael. Því má telja líklegt að heimaleikur Hapoel fari fram á hlutlausum velli, mögulega í Ungverjalandi.

Fyrri leikurinn verður spilaður 21. eða 22. júlí og sá síðari viku síðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.