HM: Kane jafnaði met Lineker í sterkum sigri

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
England 4 - 2 Króatía
1-0 Harry Kane ('12 , víti)
1-1 Martin Baturina. ('36 )
2-1 Harry Kane ('42 )
2-2 Petar Musa ('45 )
3-2 Jude Bellingham ('47 )
4-2 Marcus Rashford ('85 )
1-0 Harry Kane ('12 , víti)
1-1 Martin Baturina. ('36 )
2-1 Harry Kane ('42 )
2-2 Petar Musa ('45 )
3-2 Jude Bellingham ('47 )
4-2 Marcus Rashford ('85 )
England spilaði sinn fyrsta leik á HM í ár þegar liðið mætti Króatíu. England fékk vítaspyrnu snemma leiks þegar Luka Modric braut á Noni Madueke. Harry Kane steig að sjálfsögðu á punktinn en Dominik Livakovic varði frá honum.
Kane fékk hins vegar annað tækifæri þar sem Livakovic var kominn af línunni þegar spyrnan var tekin. Í þetta sinn skoraði Kane af öryggi og kom Englandi yfir.
Króatía jafnaði metin þegar Martin Baturina skoraði með glæsilegu skoti. Kane kom Englandi aftur yfir þegar hann skoraði með skalla eftir hornspyrnu frá Declan Rice. Þetta var tíunda mark hans á HM en hann jafnaði met Gary Lineker sem skoraði einnig tíu mörk fyrir England á HM.
Petar Musa jafnaði hins vegar metin aftur fyrir Króatíu í blálok fyrri hálfleiks eftir frábæra sókn.
England náði forystunni í þriðja sinn strax í upphafi leiks þegar Jude Bellingham brunaði inn á teiginn og kláraði færið vel.
Það var nóg að gera hjá Livakovic fyrstu mínúturnar í seinni hálfleik en hann kom í veg fyrir að England náði að bæta við mörkum. Hann varði m.a. í þrígang í einni sókn.
Thomas Tuchel gerði þrefalda skiptingu eftir vatnspásuna þar sem Marcus Rashford, Bukayo Saka og Morgan Rogers komu inn á. Rashford innsiglaði frábæran sigur Englands þegar hann skoraði framhjá Livakovic eftir sendingu frá Saka.
Liðin eru í L-riðli með Gana og Panama sem mætast klukkan 23 í kvöld.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!