Fotbolti.net
17.06.26 - 03:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

HM: Messi jafnaði markametið

Messi skoraði þrennu.

Messi skoraði þrennu.

Canon

Mynd: EPA

Argentína 3 - 0 Alsír
1-0 Lionel Messi ('17 )
2-0 Lionel Messi ('60 )
3-0 Lionel Messi ('76 )
Tilfinningaríkur Messi - Átti hann að fá rautt?
TENGT EFNI

Tilfinningaríkur Messi - Átti hann að fá rautt?

Heimsmeistarar Argentínu stimpluðu sig heldur betur inn á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó er þeir mættu Alsír í nótt.

Lionel Messi, sem er að margra mati besti fótboltamaður sögunnar, var heldur betur í gírnum í þessum leik en hann skoraði fyrsta markið með glæsilegu skoti eftir 17 mínútur.

Stuttu áður en markið kom hafði Alsír skorað mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Messi skoraði þar áður mark sem var dæmt af út af rangstöðu.

Eftir markið sem fékk að standa var Messi heppinn að halda sér inn á vellinum eftir að hann traðkaði á leikmanni Alsír. Atvikið var skoðað í VAR og Messi fékk ekki spjald.

Í seinni hálfleiknum bætti Messi tveimur mörkum til viðbótar og fullkomnaði þrennu sína. Stórkostleg byrjun á mótinu hjá þessum merka fótboltamanni sem er að spila á sínu síðasta heimsmeistaramóti. Hann er orðinn 38 ára gamall en töfrarnir eru ekki horfnir.

Messi hefur núna skorað 16 mörk á HM og er búinn að jafna Miroslav Klose yfir flest mörk í sögu keppninnar. Hann mun líklega bæta metið á þessu móti en Kylian Mbappe, leikmaður Frakklands, er bara tveimur mörkum frá.

Argentína vann 3-0 og gefur þessi sigur góð fyrirheit fyrir framhaldið hjá heimsmeisturunum.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Marki fagnað.

Marki fagnað.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.