Víkingur mætir ungversku meisturunum - Sterkasti mögulegi andstæðingurinn

Fara til Ungverjalands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fara til Ungverjalands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur mætir ungversku meisturunum Györ ETO í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Heppnin var ekki með Víkingi í liði en Györ er sterkasti mögulegi andstæðingurinn sem hægt var að fá í fyrstu umferð.
Dregið var fyrir skemmstu en Víkingur fær fyrri leikinn heima og verður hann spilaður 7. eða 8. júlí. Síðari leikurinn verður spilaður í Ungverjalandi viku síðar.
Dregið var fyrir skemmstu en Víkingur fær fyrri leikinn heima og verður hann spilaður 7. eða 8. júlí. Síðari leikurinn verður spilaður í Ungverjalandi viku síðar.
Víkingur hefur einu sinni mætt Györ áður en það var árið 1983 í Evrópukeppni meistaraliða. Györ fór þar með 4-1 sigur af hólmi í einvíginu.
Sigurvegari einvígisins fer áfram í 2. umferð Meistaradeildarinnar en liðið sem tapar fer í 2. umferð Sambandsdeildarinnar.
Sigurvegari einvígisins fer áfram í 2. umferð Meistaradeildarinnar en liðið sem tapar fer í 2. umferð Sambandsdeildarinnar.


