Maður dagsins á HM - Njótum töfranna á meðan við getum

Messi skoraði þrennu í opnunarleik Argentínumanna

Mynd: EPA

Messi er maður dagsins á HM

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

TENGT EFNI
HM: Messi jafnaði markametið
Valið er fremur augljóst að þessu sinni. Lionel Messi, einn besti knattspyrnumaður allra tíma, stimplaði sig inn á heimsmeistaramótið með pomp og prakt, skoraði þrennu og jafnaði markamet Miroslav Klose.
Einhverjir efuðust um að hann gæti boðið upp á frammistöðu í líkingu við það sem hann gerði á síðasta HM, þegar hann fór alla leið með Argentínu og var valinn besti leikmaður mótsins. En gæði eru varanleg.
Messi var ekki lengi að láta til sín taka. Hann skoraði öll þrjú mörk Argentínu í 3-0 sigri á Alsír og minnti rækilega á hvers vegna hann er enn í allra fremstu röð.
Hann fagnar 39 ára afmæli sínu í næstu viku og gaf sjálfum sér sannkallaða afmælisgjöf með frammistöðu í hæsta gæðaflokki. Fyrsta markið kom á 17. mínútu þegar „lífvörðurinn“ Rodrigo De Paul sendi konfektsendingu á milli línanna og á Messi, sem lagði boltann fyrir sig og hamraði honum upp í hægra hornið.
Luca Zidane, markvörður Alsírs, kom hönd á boltann en var ekki nógu sterkur til að ráða við bylmingsskot Messi. Það var umdeilt hvort hann hafi átt að vera mikið lengur inn á eftir að hafa hann steig harkalega á kálfa Aissa Mandi, en VAR skoðaði atvikið og gaf Messi ekki einu sinni gult fyrir verknaðinn.
Annað markið kom á 60. mínútu. Zidane hélt þá ekki skoti Alexis Mac Allister og Messi var mættur eins og hrægammur í teignum, fyrstur að boltanum og kláraði af yfirvegun.
Stundarfjórðungi síðar fullkomnaði hann þrennuna, þá fyrstu sem hann skorar á heimsmeistaramóti. Markið var glæsilegt; fast skot rétt fyrir utan teig sem söng niðri í vinstra horninu.
Það var jafnframt sögulegt mark. Með því jafnaði Messi markamet Klose á HM, en báðir eru nú með 16 mörk. Messi fær tækifæri til að bæta metið í næsta leik.
Það virðist nánast óhjákvæmilegt að metið falli á þessu móti. Ef Messi verður ekki sá sem gerir það gæti Kylian Mbappe orðið það, en hann skoraði tvennu í 3-1 sigri Frakka á Senegal í gær.
Grét eftir fyrsta markið
Messi var tilfinningaríkur eftir fyrsta markið og felldi tár. Hann sagði það þó ekki hafa tengst fótbolta á nokkurn hátt heldur persónulegum málum.
„Það er satt að ég grét eftir fyrsta markið, en það var algerlega ótengt fótbolta. Ég fór í gegnum erfiða daga, en ég er þakklátur öllu starfsliðinu og liðsfélögum mínum því þeir stóðu alltaf við bakið á mér og gáfu mér mikinn styrk.
Ég get ekki beðið um mikið meira. Guð hefur gefið mér svo mikið og nú ætla ég bara að njóta. Ég er bara ánægður með að vera talinn einn sá besti í fótboltasögunni,“ sagði Messi.
Fyllilega verðskuldað hjá Messi í nótt, en aðrir sem komu til greina voru Kylian Mbappe og Erling Braut Haaland, sem skoruðu báðir tvennu.