Ronaldo vill ljúka umræðunni: Messi er besti leikmaður allra tíma

Er Lionel Messi sá besti?

Mynd: EPA

Ronaldo segir að Messi sé besti leikmaður allra tíma

Mynd: EPA

Er Lionel Messi sá besti?

Mynd: EPA
Argentínumaðurinn Lionel Messi er besti leikmaður allra tíma, að minnsta kosti samkvæmt hinum brasilíska Ronaldo. Orð sem vega þungt, enda er Ronaldo sjálfur einn af þeim allra bestu.

TENGT EFNI
Maður dagsins á HM - Njótum töfranna á meðan við getum
Messi skoraði öll þrjú mörk Argentínu í opnunarleik heimsmeistaranna gegn Alsír á HM í gær.
Hann jafnaði þar með markamet Miroslav Klose á HM og virðist eldast eins og gott rauðvín.
Ronaldo, sem spilaði með bæði Barcelona og Real Madrid á ferli sínum og varð tvívegis heimsmeistari með Brasilíu, vill ljúka umræðunni um besta leikmann allra tíma, en hann segir Messi taka þann titil fram yfir Cristiano Ronaldo.
„Met eru gerð til að slá þau og það kemur engum fótboltaáhugamanni á óvart hver er að gera það. Fyrir utan það er Argentína ríkjandi heimsmeistari.“
„Í hvert sinn sem Messi stígur inn á völlinn verður allt sögulegt og fágað. Það er kominn tími til að heimurinn hætti að fela sig og viðurkenni að hann sé besti leikmaður allra tíma.“
„Hann heldur áfram að standa sig, tímabil eftir tímabil og á HM, en samt eru enn einhverjir þarna úti sem efast um hann. Þetta var ógleymanlegt kvöld sem fer í sögubækurnar,“ sagði Ronaldo.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!