Fotbolti.net
17.08.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Giggs viðurkennir framhjáhöld en neitar öðru

Giggs viðurkennir framhjáhöld en neitar öðru
Canon

Mynd: Getty Images

Það er verið að rétta yfir Ryan Giggs, fyrrum leikmanni Manchester United og landsliðsþjálfara Wales, sem er ásakaður um ýmsa glæpi gagnvart fyrrum kærustu sinni.

Kate Greville, fyrrum kærasta Giggs, og yngri systir hennar, Emma, hafa ásakað Giggs um ýmislegt. Emma sagði meðal annars frá því þegar hún horfði á Giggs skalla systur sína, en Giggs segir það ekki vera satt.

Giggs bar vitni í gær og viðurkenndi að hann hafi margoft haldið framhjá Kate og öllum öðrum kærustum í lífi sínu og logið til um það. Hann harðneitaði þó að hafa nokkurn tímann lagt hendur á kvenmann eða að hafa ætlað sér að þvinga kvenmann til einhvers.

Þá gengst Giggs heldur ekki við öðrum ásökunum um að hafa til að mynda hótað Kate með hefndarklámi og sakar bæði hana og systur hennar um lygar og rógburð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.