03.10.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ætlar ekki að segja af sér eftir sögulega slæmt gengi

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Gheorghe Hagi segist ekki ætla að segja af sér sem landsliðsþjálfari Rúmeníu þrátt fyrir sögulega slæma byrjun undir hans stjórn.
Rúmenía hefur tapað öllum þremur leikjunum í Þjóðadeildinni og Hagi er fyrsti þjálfar Rúmeníu til að tapa fyrstu þremur leikjunum.

Rúmenía tapaði 6-0 gegn Póllandi í gær sem er jöfnun á versta tapi liðsins i sögunni.
„Það er tilgangslaust að tala um þessa hluti núna. Sársaukinn er of mikill og við hugsum bara um þennan leik, þetta tap er sárt. Við förum heim á morgun, við verðum að standa saman, við höfum tvo daga fyrir næsta leik og við munum hugsa um leikinn gegn Svíþjóð," sagði Hagi.