Fotbolti.net
03.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sá leikjahæsti framlengir í Njarðvík

Sá leikjahæsti framlengir í Njarðvík
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Lengjudeildin
Arnar Helgi Magnússon hefur framlengt samning sinn við Njarðvík út árið 2028.

Arnar gekk til liðs við Njarðvík frá FH árið 2016 og spilaði sína fyrstu leiki í meistaraflokki með liðinu i 2. deild. Hann hefur spilað 282 leiki og er leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins.
Hann spilaði 30 leiki á síðasta tímabili í öllum keppnum og skoraði þrjú mörk.

„Það kom ekki annað til greina en að halda áfram hjá Njarðvík!
Klúbburinn er búinn að stækka mikið seinustu ár og búið að vera geggjað að vera hluti af því,"
sagði Arnar.

„Erum búnir að vera nálægt því að komast upp seinustu ár og súrt að hafa ekki náð að klára það núna. Við erum með frábært þjálfarateymi og sterkan hóp og kominn tími á að taka skrefið upp í næstu deild, og ég ætla mér að sjálfsögðu að vera hluti af því!“

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.