Fotbolti.net
03.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Vesko kom Fjölni upp og framlengir

Vesko kom Fjölni upp og framlengir
Canon

Mynd: Fjölnir

Kvennaboltinn
Veselin Chilingirov, eða Vesko eins og hann er kallaður, hefur skrifað undir þriggja ára framlengingu á samningi sínum við Fjölni.

Vesko tók við kvennaliði Fjölnis fyrir tímabilið í fyrra og liðið tryggði sér sigur í 2. deild síðasta sumar og spilar því í Lengjudeildinni á næstu leiktíð.

Yngri flokkastarf félagsins hefur einnig tekið miklum framförum frá komu Vesko.

„Vesko hefur ekki aðeins komið inn með þekkingu og reynslu sem þjálfari heldur einnig með sterka sýn á hvernig byggja á upp félag til framtíðar. Hann hefur verið frábær viðbót við samfélagið í Grafarvogi, kynnst fólkinu í kringum félagið og lagt sig fram um að vera mikilvægur hluti af þeirri uppbyggingu sem á sér stað innan Fjölnis," segir í tilkynningu frá Fjölni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.