02.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mark dæmt af Dzeko í síðasta landsleiknum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bosníumaðurinn Edin Dzeko hefur lagt landsliðskóna á hilluna eftir 1-1 jafntefli gegn Svíþjóð í Þjóðadeildinni í kvöld.
Þessi fertugi spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2007 en hann skoraði 73 mörk í 151 leik.
Þessi fertugi spilaði sinn fyrsta landsleik árið 2007 en hann skoraði 73 mörk í 151 leik.
Dzeko kom boltanum í netið undir lok fyrri hálfleiks í kvöld en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Liðsfélagar hans stóðu heiðursvörð þegar hann var tekinn af velli í sínum síðasta landsleik eftir klukkutíma leik.
Hann skoraði tíu mörk í undankeppni HM þegar Bosnía og Hersegóvína tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn árið 2014. Liðið tryggði sér síðan sæti á HM 2026 stuttu eftir fertugsafmælið hans með sigri á Ítalíu.