02.10.26 - 23:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjög ósáttur með álagið - „Enginn mun hlusta"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Hollendingurinn Brian Brobbey, leikmaður Sunderland, meiddist aftan í læri í leik Hollendinga gegn Þýskalandi þann 24. september. Cees-Rein van den Hoogenband, fyrrum læknir PSV, gagnrýnir álagið á leikmönnum.
Brobbey kom heitur inn í landsleikjahléið en hann skoraði þrennu gegn Man City í 5-3 tapi.
„Þetta hefur gríðarleg áhrif. Allir sjá það af fjölda meiðsla. Hins vegar geri ég mér enga grein fyrir því að enginn mun hlusta. Hagsmunir eru svo ótrúlega miklir,“ sagði Hoogenband við Sportnieuws.nl.
„Ég held niðri í mér andanum. Ég óttast að margir munu fylgja í kjölfarið. Það er eins og að reyna að þurrka upp vatn með kranann enn í gangi, því leikmenn fá einfaldlega ekki þá hvíld sem þeir þurfa.“
„Enska úrvalsdeildin er nú þegar svo erfið með tveimur leikjum í viku, og svo bæta þeir við Þjóðadeildartímabili eins og þessu með fjórum leikjum á tveimur vikum. Óskiljanlegt. Á mínum tíma sem læknir hjá PSV átti ég það í raun mjög auðvelt. Þetta er orðið miklu erfiðara," sagði Hoogenband að lokum.