Fjögur stig eftir níu umferðir en héldu sér uppi: Æfðum eins og geðsjúklingar á meðan aðrir voru kannski í pásu


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Skringilegt, vonsvikinn með að tapa þessum leik við komum til þess að vinna" sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir 1-2 tap á heimavelli gegn Val í síðasta leik neðri hluta Bestu Deildarinnar.
„Virkilega sáttur með að vera ekki liðið sem er svekkt í dag,"
Hvernig er að koma inn í leik sem skiptir engu máli?
„Það sást alveg á byrjuninni að hvort liðið væri að spila upp á líf og dauða og hvort liðið væri búið að létta lóðunum af sér. En við byggðum alveg vikuna upp eins en orkustigið var ekki það sama og hefur verið í síðustu leikjum hjá okkur. En það er kannski skiljanlegt."
„Kannski meira spennufall en kæruleysi, búið að vera alveg með bakið upp við vegg síðan í níundu umferð þegar við vorum með fjögur stig og staðið sig virkilega vel leik eftir leik. Unnið sér vel inn í mótið og koma sér í bílstjórasætið fyrir skiptinguna og þá er það kannski eðlilegt að það komi smá spennufall þegar þú ert búin að ná takmarkinu."
Fram byrjaði mótið ekki vel en enda á því að vinna neðri hlutann.
„Við komum seint saman með liðið okkar, það var smá öldur í byrjun tímabils og því þegar ég kem inn þá eru leikmenn til staðar og byggðum í kringum þá. Sóttum leikmenn, þær koma þrjár fjórar nýjar inn í Tenerife ferðina okkar tveimur vikum fyrir mót. Kannski tók sinn tíma að spila, en við héldum alltaf í grunngildi og það sem við höfum verið að vinna með í sumar. Það small bara í semsagt U-19 landsleikjahléinu þegar við mættum hérna á Lambhagavöllinn og æfðum eins og geðsjúklingar á meðan aðrir voru kannski í pásu og að slaka á þá stigu stelpurnar á bensíngjöfina. Það sýndi sig í fyrsta leik eftir pásu á móti Breiðablik þar sem boltinn fór að rúlla. Eftir það sex sigrar í níu í deildinni, svon vinnum við eitt og gerum eitt jafntefli og töpum núna í efri hlutanum, það er virkilega sterkt."
„Yngri flokkarnir okkar eru að tengjast kannski í fyrsta skipti við meistaraflokkinn, annar flokkur er að byrja hjá okkur í fyrsta skipti í sögunni hjá Fram, það er virkilega spennandi. Það er virkilega mikill metnaður í félaginu og það ætla allir að gera vel, hvort sem það er í yngri flokkum í sjöunda eða upp í meistaraflokkinn. Það eru allir að vinna saman að því að gera Fram að stórveldi kvennameginn líka."
Fullt viðtal í spilaraum fyrir ofan
