Fotbolti.net
03.10.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gunnar Jónas og Breki yfirgefa Vestra

Gunnar Jónas Hauksson

Gunnar Jónas Hauksson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Gunnar Jónas Hauksson hefur yfirgefið Vestra en hann er búsettur í Reykjavík.

Hann er uppalinn hjá KR en hefur spilað með Vestra undanfarin þrjú tímabil og varð bikarmeistari með liðnu í fyrra.
"Mig langar að þakka öllum sem hafa verið hluti af þessum síðustu þremur árum hjá Vestra. Liðsfélögum, þjálfurum, starfsfólki, sjálfboðaliðum, stuðningsmönnum og öllum í kringum félagið.
Það hefur verið virkilega sérstakt fyrir mig að fá að spila aftur á Ísafirði og vera hluti af Vestra undanfarin þrjú ár. Ég er mjög þakklátur fyrir tímann hér og allt sem ég hef fengið að upplifa með félaginu. Takk kærlega fyrir mig. Áfram Vestri,"
sagði Gunnar.

Þá hefur félagið tilkynnt að Breki Þór Hermannsson hafi yfirgefið félagið. Hann var á láni frá ÍA á síðasta tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.