Fotbolti.net
02.10.26 - 22:33
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Gyökeres sjóðandi heitur - Sá fyrsti í sögunni

Gyökeres sjóðandi heitur - Sá fyrsti í sögunni
Canon

Mynd: EPA

Sænski landsliðsmaðurinn Viktor Gyökeres er sjóðandi heitur en hann hefur skorað í öllum þremur leikjum Svía í Þjóðadeildinni.

Hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Rúmeníu, innsiglaði 3-1 sigur á Póllandi og skoraði í 1-1 jafntefli gegn Bosníu og Hersegóvínu í kvöld.
Hann hefur skorað í sex leikjum í röð í keppninni en enginn hefur skorað í jafn mörgum leikjum í röð síðan keppnin hófst árið 2018. Hann var markahæstur í síðustu keppni með níu mörk.

Gyökeres hefur átt erfitt uppdráttar í upphafi tímabilsins með Arsenal. Hann hefur komið við sögu í fimm leikjum og ekki náð að skora. Hann hefur ekkert komið við sögu í þremur af fimm leikjum í úrvalsdeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.