Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 18. janúar 2021 10:00
Magnús Már Einarsson
Özil: Draumar mínir eru að rætast
Mynd: Getty Images
„Ég er mjög spenntur því ég hef alltaf verið stuðningsmaður Fenerbahce. Draumar mínir eru að rætast," sagði Mesut Özil þegar hann mætti til Tyrklands í morgun.

Özil er að ganga frá þriggja og hálfs árs samningi hjá Fenerbahce eftir að hafa samþykkt að gera starfslokasamning við Arsenal.

„Ég er mjög spenntur að klæðast treyju Fenerbahce. Ég vonast til að ná góðum árangri með liðsfélögum mínum."

„Guð blessi stuðningsmenn okkar því þeir styðja okkur alltaf. Eins og ég nefndi þá er ég mjög ánægður með að vera hér."

„Ég vonast til með að geta þakkað stuðningsmönnum okkar með góðri frammistöðu inni á vellinum."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner