Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 18. febrúar 2021 11:00
Magnús Már Einarsson
Sunderland í úrslit í pizza bikarnum
Mynd: Getty Images
Sunderland tryggði sér í gær sæti í úrslitaleiknum í bikarkeppni neðrideildar liða á Englandi en liðið vann Lincoln 5-3 eftir vítaspyrnukeppni á the Stadium of Light í gær.

Bikarkeppni liða í neðri deildunum hefur borið hin ýmsu nöfn í gegnum tíðina en í dag er Papa John's pizza staðurinn styrktaraðili keppninnar.

Staðan var 1-1 eftir venjulegan leiktíma í gær en Charlie Wyke skoraði mark Sunderland. Hann hefur skorað 22 mörk á tímabilinu.

Sunderland mætir Tranmere í úrslitaleiknum á Wembley þann 14. mars næstkomandi.

Í annarri seríu Netflix í þáttunum „Sunderland 'Til I Die" var gert mikið úr því þegar liðið fór í úrslit í bikarkeppni neðri deildanna árið 2019. Sunderland tapaði þar í vítaspyrnukeppni í dramatískum leik.
Athugasemdir
banner
banner