Eintracht Frankfurt og Rangers eigast við í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Sevilla í kvöld.
Það ríkir mikil eftirvænting fyrir þessa viðureign þar sem tvö sögufræg félög með stóra stuðningsmannahópa mætast í leik þar sem allt er undir.
Heimavöllur Sevilla tekur aðeins 42 þúsund manns í sæti en lögreglan í Sevilla býst við um 150 þúsund stuðningsmönnum til borgarinnar - 100 frá Glasgow og 50 frá Frankfurt.
Bæði lið hafa einu sinni áður komist í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, þegar keppnin hét UEFA Cup. Rangers tapaði 2-0 gegn Zenit frá Pétursborg er liðin mættust í Manchester 2008 og fóru skosku stuðningsmennirnir ekki sérlega vel með miðborgina.
Það er lengra síðan Frankfurt var í úrslitaleiknum en Þjóðverjarnir höfðu þá betur gegn samlöndum sínum í Borussia Mönchengladbach, árið 1980. Á þeim tíma voru tveir úrslitaleikir og vann Frankfurt á útivallarmörkum.
Leikur kvöldsins:
19:00 Frankfurt - Rangers (Stöð 2 Sport 2)