Tottenham hefur áhuga á að fá bakvörðinn Tariq Lamptey frá Brighton í sumarglugganum.
Sky Sports greinir frá þessu en Lamptey spilaði vel með Brighton á síðustu leiktíð áður en hann meiddist.
Lamptey meiddist í desember á síðasta ári og eftir aðgerð spilaði hann ekki fleiri en 19 leiki með Brighton.
Frammistaða leikmannsins á fyrri hluta tímabils heillaði þó marga og samkvæmt Sky horfir Tottenham til hans.
Lamptey er aðeins 20 ára gamall en hann kom til Brighton frá Chelsea á síðasta ári.
Athugasemdir