Maður dagsins á HM - Tímaspursmál hvenær hann bætir metið

Jafnaði met Lineker.

Mynd: EPA

Síðasti 4-2 sigur Englands á heimsmeistaramóti var í úrslitaleiknum 1966.

Mynd: EPA

Jafnaði met Lineker.

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Harry Kane var í essinu sínu er England lagði Króatíu að velli, 4-2. Kane skoraði fyrstu tvö mörk liðsins. Fyrra markið kom eftir endurtekna vítaspyrnu og hið síðara var laglegt skallamark.

TENGT EFNI
HM: Kane jafnaði met Lineker í sterkum sigri
Með mörkunum tveimur jafnaði Kane met Gary Lineker og eru þeir jafnmarkahæstu menn Englands á heimsmeistarakeppni, báðir með tíu mörk.
Miðað við markaskorun Kane síðustu misseri er aðeins tímaspursmál hvenær hann bætir met Lineker. Frá því að hann gekk til liðs við Bayern fyrir þremur árum hefur hann komið að 200 mörkum í 178 leikjum fyrir Bæjara og England. Alls 168 mörk og 32 stoðsendingar.
Góð úrslit gærkvöldsins gegn Króatíu slökkva ekki í væntingum blóðheitra Englendinga sem benda margir á að síðast þegar England vann 4-2 sigur á heimsmeistaramóti var það gegn Vestur-Þýskalandi í úrslitaleiknum 1966. Hvort að það séu góð fyrirheit eða ekki verða aðrir að dæma um.