Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   sun 18. júlí 2021 21:30
Matthías Freyr Matthíasson
Óli Jóh: Erum samt ennþá í botnbaráttu
Ólafur og aðstoðarmaður hans, Davíð Þór.
Ólafur og aðstoðarmaður hans, Davíð Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Já ég er sáttur, það er mikilvægt að vinna og langt síðan við höfum unnið þannig að þessi sigur er mjög mikilvægur og kemur á góðum tíma fyrir okkur," sagði ánægður Ólafur Jóhannesson þjálfari FH eftir 1 - 0 sigur á Fylki í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 1 -  0 Fylkir

„Ég var nú ekkert mikið að pæla í því. Ég var aðallega hræddur um mitt eigið mark, það var það sem við lögðum upp með að halda hreinu sagði Ólafur aðspurður um hvort hann hefði orðið hræddur um að FH tækist ekki að skora í leiknum eftir fjölmörg dauðafæri.

Já, það er hárrétt, þessi sigur var lífsnauðsynlegur. En við erum samt ennþá í botnbaráttu og við megum ekki fara að gleyma okkur í því vegna þess að það er stutt niður og við verðum að halda vel á spilunum og halda áfram.

Það er geggjaðslega gaman að spila í Evrópukeppni og gott að fara sérstaklega í útileiki að fá að fara og vera í friði og tala saman og vinna í því sem við þurfum að vinna í. Klárlega gaf ferðin okkur til Írlands mikið og vonandi gefur ferðin til Noregs okkur ennþá meira.

Það er geggjað að fara að spila við Rosenborg. Er reyndar ekki farinn að skoða þá en Matti veit ýmislegt um þá og ég spilaði við þá ekki fyrir langa löngu þannig að ég er spenntur að fara."


Aðspurður um hvort breytinga væri að vænta á leikmannahópnum svaraði Ólafur:

„Ekki held ég það í augnablikinu, nei það held ég ekki."

Nánar er rætt við Ólaf í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner