10.08.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon
Arsenal gæti hrifsað Barcola fyrir framan nef Liverpool

Bradley Barcola.

Mynd: EPA

Cody Gakpo.

Mynd: EPA

Endrick.

Mynd: EPA

Bradley Barcola.

Mynd: EPA

Slúðurpakkinn á mánudegi. Leikið verður um Samfélagsskjöldinn um næstu helgi þegar Arsenal mætir Manchester City. Það þýðir að enska úrvalsdeildin er handan við hornið!
Arsenal hefur sett sig í samband við herbúðir Bradley Barcola (23) og gæti reynt að næla í þennan franska sóknarleikmann Paris St-Germain sem hefur verið sterklegra orðaður við Liverpool. (Give Me Sport)
Enski framherjinn Marcus Rashford (28) er tilbúinn að reyna að endurlífga feril sinn hjá Manchester United en hann er kominn aftur eftir lánsdvöl hjá Barcelona. (Sun)
Liverpool gæti opnað dyr fyrir hollenska sóknarleikmanninn Cody Gakpo (27) að fara til Tottenham ef félagið tryggir sér eitt af skotmörkum sínum. (Football Insider)
Arsenal og Tottenham sýndu Ferran Torres (26) leikmanni Barcelona áhuga áður en spænski framherjinn náði munnlegu samkomulagi við Paris St-Germain. (Teamtalk)
Crystal Palace hefur hafið viðræður um kaup á senegalska miðjumanninum Lamine Camara (22) frá Mónakó. (Nicolo Schira)
Manchester United og Arsenal eru meðal félaga sem vilja fá belgíska vinstri bakvörðinn Joaquin Seys (21) frá Club Brugge. (Sun)
Harry Kane (33) mun væntanlega framlengja við Bayern München til 2029. (Times)
Aston Villa og Roma hafa áhuga á að fá brasilíska framherjann Endrick (22) lánaðan frá Real Madrid. (AS)
Fulham hefur samþykkt að kaupa norður-írska miðjumanninn Shea Charles (22) frá Southampton. Kaupverðið gæti náð 30 milljónum punda. (Athletic)
Skoski sóknarmaðurinn Robbie Ura (22) er á leið til Sevilla frá IK Sirius í Svíþjóð. (ESPN)
Sheffield United hefur gert endurbætt tilboð upp á 8 milljónir punda í ástralska miðvörðinn Harry Souttar (27) hjá Leicester. (Football Insider)
Barcelona hefur tilkynnt Hector Fort (20) að hann megi yfirgefa félagið. Everton og Fulham eru meðal félaga sem hafa áhuga á spænska hægri bakverðinum. (TeamTalk)