Fotbolti.net
10.08.26 - 10:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tveir Eyjamenn, fyrirliði KA og tveir þjálfarar í bann

Helgi Jónas vildi fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd leikmanns Vals, sem var að renna sér.

Helgi Jónas vildi fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd leikmanns Vals, sem var að renna sér.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einn leikur er eftir í 18. umferð Bestu deildarinnar, fimm leikir fóru fram í gær og Fram tekur á móti KR í kvöld.

Sex aðilar úr Bestu deildinni eru komnir í leikbann eftir leiki gærdagsins.

Tveir Eyjamenn fengu sitt fjórða gula spjald í gær og verða því í leikbanni gegn ÍA í Vestmannaeyjum næsta sunnudag. Það eru þeir Mattias Edeland og Arnór Ingi Kristinsson.
Í sama leik, Víkingur-ÍBV, fékk Viktor Bjarki Arnarsson, aðstoðarþjálfari Víkings, rauða spjaldið eftir leik og verður hann í banni þegar Víkingur mætir FH á útivelli næsta sunnudag.

Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliði KA, fékk sitt fjórða gula spjald í sumar þegar FH kom í heimsókn í gær. Hann tekur út leikbann gegn Val á útivelli næsta mánudag.

Alpha Conteh fékk rauða spjaldið gegn sínum fyrrum félögum í Stjörnunni í gær og missir af leik Keflavíkur gegn Þór næsta laugardag.

Helgi Jónas Guðfinsson, styrktarþjálfari Breiðabliks, fékk þá rauða spjaldið þegar Blikar tóku á móti Val. Helgi Jónas verður ekki á bekknum þegar Blikar heimsækja KR næsta sunnudag.

„Stórfurðulegt atvik þarna! Fær rautt fyrir að grýta æfingakeilu!" skrifaði Hafþór Örn Laursen á 83. mínútu í leik Breiðabliks og Vals í gær þegar hann lýsti rauða spjaldi Helga Jónasar.

Eins og áður hefur komið fram verða fjórir Framarar í banni gegn KR í kvöld. Það eru þeir Ægir Jarl Jónasson, Sigurjón Rúnarsson, þjálfarinn Rúnar Kristinsson og Israel Garcia.

19. umferðin í Bestu
laugardagur 15. ágúst
17:00 Þór-Keflavík (VÍS völlurinn)

sunnudagur 16. ágúst
18:00 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
18:00 FH-Víkingur R. (Kaplakrikavöllur)
18:00 ÍBV-ÍA (Hásteinsvöllur)

mánudagur 17. ágúst
18:00 Valur-KA (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Fram-Stjarnan (Lambhagavöllurinn)
Víkingarnir voru svekktir með vítið sem ÍBV fékk.

Víkingarnir voru svekktir með vítið sem ÍBV fékk.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hans Viktor kominn í bann.

Hans Viktor kominn í bann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik20+530
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Valur21-724
8Stjarnan20-1024
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.