Fotbolti.net
10.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nunez sendi landa sínum kveðju - „Stuðningsmenn Liverpool eru sérstakir"

Nunez sendi landa sínum kveðju - „Stuðningsmenn Liverpool eru sérstakir"
Canon

Mynd: EPA

Úrúgvæinn Ronald Araujo er á leið til Liverpool á láni frá Barcelona.

Liverpool hefur verið í leit að varnarmanni eftir að Ibrahima Konate yfirgaf félagið og gekk til liðs við Real Madrid. Joe Gomez er á meiðslalistanum og Giovanni Leoni og Jeremy Jacquet eru að jafna sig af meiðslum.
Darwin Nunez, fyrrum leikmaður Liverpool og félagi Araujo í landsliði Úrúgvæ, sendi landa sínum kveðju á samfélagsmiðlinum X.

„Ég óska þér alls hins besta hjá þessu frábæra félagi. Ég er virkilega ánægður að þú getir fundið fyrir því hvernig ástin og stuðningur stuðningsmanna Liverpool er. Þeir eru sérstakir og þeir munu láta þér líða þannig. Nú ert þú rauður ég óska þér alltaf alls hins besta," skrifaði Nunez.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.