Fotbolti.net
09.08.26 - 23:31
Hafþór Örn Laursen

Þorleifur: Rétti stökkpallurinn aftur í atvinnumennsku

Auglýsing
Þorleifur Úlfarsson, nýr leikmaður Breiðablikur

Þorleifur Úlfarsson, nýr leikmaður Breiðablikur

Canon

Mynd: Breiðablik

Þorleifur Úlfarsson kom inná í sínum fyrsta leik fyrir Breiðablik í 1-3 tapleik eftir að hann var kynntur sem nýr leikmaður liðsins í gær. Fótbolti.net náði honum í stutt viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 Valur
„Það er gott að vera kominn heim, fara aftur í treyjuna og spila með strákunum, en þetta er úrslitabransi og það er það eina sem skiptir máli.''

Þorleifur átti mjög gott tímabil í USL-deildinni með Loudoun United, en hann spilaði 16 leiki, og skoraði 8 mörk og lagði tvisvar upp. Þorleifur var spurður af hverju hann væri kominn aftur heim.

„Það er margþætt. Ég hef alltaf viljað spila fyrir Breiðablik og þetta kom í raun upp úr þurru. Eftir góð samtöl við þjálfarana og stjórnina þá fannst mér þetta besta ákvörðunin á þessum tímapunkti. Að sjálfsögðu vill maður vera í atvinnumensku en ég held að þetta sé rétta „platformið'' til að taka það stökk aftur.''

Hvað kemur þú með í lið Breiðabliks?

Mörk. Ég er pjúra markaskorari, ég vil vera fyrir framan markið og fá boltann í góðum stöðum til að skora.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.