Fotbolti.net
10.08.26 - 10:34
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Kæmi mjög á óvart ef Fram fengi að njóta krafta hans næsta sumar

Skorað þrjú í síðustu fjórum leikjum.

Skorað þrjú í síðustu fjórum leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Sigurðsson hefur verið sjóðheitur með Fram í síðustu leikjum. Þessi tvítugi miðjumaður hefur skorað þrjú mörk í fjórum leikjum liðsins.

Stefán Pálsson var gestur í útvarpsþættinum Fótbolta.net á laugardaginn og furðaði sig á því að hann hefði ekki verið orðaður meira út við atvinnumennsku.
„Maður hefur spurt sig að því hvernig hann fellur svona undir radarinn. Maður veltir því fyrir sér hvort að gagnabankarnir og excel skjölin sigti hann út vegna þess að það vanti nokkra sentímetra,“ segir Stefán en hann býst þó við að hann fari erlendis í atvinnumennsku eftir tímabil.

„Ég yrði ofboðslega hissa að við Framarar fengju að njóta þess að vera með Frey í liðinu næsta sumar. Ég eiginlega trúi ekki að þessar tölur og gæði skili honum ekki út,“ segir Stefán.

Í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum
Freyr er Hornfirðingur en hann gekk í raðir Fram fyrir tveimur árum þegar hann flutti á höfuðborgarsvæðið til að fara í skóla.

„Við sóttum hann ekki á sínum tíma. Hann kom suður í skóla. Um leið og það var keypt íbúð í Grafarholtinu spurði hann hvort hann mætti koma á æfingu,“ segir Stefán en stuðningsmenn kalla Frey gjarnan hinn hornfirska Messi.

„Hann verður fljótt 'fan favorite'. Lítill og rauðhærður - við höfum ekki átt almennilegan rauðhærðan leikmann síðan Daði Guðmundsson var í liðinu,“ sagði Stefán léttur að lokum.

mánudagur 10. ágúst
Besta karla
19:15 Fram-KR (Lambhagavöllurinn)
Framarar fá KR-inga í heimsókn í kvöld.

Framarar fá KR-inga í heimsókn í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Guðmundsson.

Daði Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.20+4651
2Fram21+1444
3KR20+2743
4Breiðablik20+530
5Keflavík21-428
6ÍA21-427
7Valur21-724
8Stjarnan20-1024
9FH21-1121
10Þór21-2918
11ÍBV21-1317
12KA21-1417
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.