09.08.26 - 22:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lárus kennir sér um meiðsli Gumma Tóta

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, kenndi sjálfum sér um að Guðmundur Þórarinsson hafi þurft að fara af velli vegna meiðsla strax í upphafi leiksins gegn Þór í kvöld.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Þór
Hann fékk aftan í læri en hann hefur verið að kljást við smávægileg meiðsli í vikunni.
„Gummi er búinn að vera að ströggla pínu í vikunni aftan í lærinu. Þetta var svona pínu spurningamerki hvort hann ætti að spila eða ekki en ég held að ég verði að taka sökina á mig. Ég var eiginlega hálfpartinn að plata hann til að spila og er með svona pínu samviskubit yfir því að þetta fór svona hjá honum en vonandi verður hann ekki lengi frá," sagði Lárus í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn.
„En það sýnir bara karakterinn hjá Gumma. Gummi var bara mættur fyrir liðið og tilbúinn til þess að taka sénsinn og Gummi er orðinn mikill leiðtogi í hópnum hjá okkur og þetta er bara lýsandi fyrir hann."