Fotbolti.net
10.08.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tryggvi Hrafn: Held það sé alveg klárt að ég klári tímabilið hér

Tryggvi Hrafn: Held það sé alveg klárt að ég klári tímabilið hér
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi Hrafn Haraldsson hefur náð samkomulagi við uppeldisfélagið ÍA og mun ganga til liðs við Skagamenn þegar samningur hans við Val rennur út eftir tímabil.
Bjartsýnn á að landa Tryggva í glugganum -  „Eitthvað mesta bull sem ég hef heyrt“
TENGT EFNI

Bjartsýnn á að landa Tryggva í glugganum - „Eitthvað mesta bull sem ég hef heyrt“

Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri ÍA, sagði í viðtali hér á Fótbolta.net í síðasta mánuði að hann væri bjartsýnn á að ná samkomulagi við Val um að Tryggvi gangi til liðs við félagið núna í glugganum.

Valur lagði Breiðablik af velli í gær og Tryggvi Hrafn skoraði og lagði upp. Hann var í viðtali við Sýn Sport eftir leikinn. Hann var spurður að því hvort hann myndi klára tímabilið með Val

„Ég veit ekki betur [en að ég klári tímabilið í Valstreyjunni]. Ég hef, í fullri hreinskilni, hvorki talað við Val eða ÍA undanfarið. Ég held að það sé alveg klárt að ég klári tímabilið hér," sagði Tryggvi.

Heimild: Vísir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.