Fotbolti.net
10.08.26 - 11:18
Elvar Geir Magnússon

Geta þau herjað á toppsætið? - Mikil spenna fyrir stórleik Fram og KR

Upphitun

Fred og Luke Rae skoruðu báðir þegar liðin mættust í maí.

Fred og Luke Rae skoruðu báðir þegar liðin mættust í maí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

18. umferð Bestu deildarinnar lýkur í kvöld með stórleik í Úlfarsárdalnum. Fram fær KR í heimsókn og vallarmet gæti fallið í Dal draumanna. Leikurinn hefst 19:15.

Liðin eru í 2. og 3. sæti en Fram getur minnkað forystu Víkings niður i fimm stig eftir jafntefli toppliðsins gegn ÍBV í gær. KR getur komist upp í 2. sæti og minnkað forystu Víkings í sex stig.

Bein textalýsing

Fótbolti.net hitar hér upp fyrir stórleik kvöldsins.
Hvernig fer leikurinn?
Erfitt er um slíkt að spá. En ef við skoðum niðurstöðu könnunar á forsíðu Fótbolta.net spá 39% sigri Fram, 19% spá jafntefli og 42% spá því að gestirnir úr Vesturbænum fari heim með öll stigin.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður að því á dögunum hvað KR þyrfti að gera til að vinna Fram?

„Við þurfum að mæta með alvöru orku og hugrekki og keyra yfir þá. Það er það sem við þurfum að gera," svaraði Óskar.

„Ef allt verður eins og það á að vera verður mikið um mörk og leikurinn algjört augnakonfekt," segir Óðinn Bjarkason, leikmaður Aftureldingar, sem spáir sex marka leik. Fram 2-4 KR.

Óðinn Bjarka spáir í 18. umferð Bestu deildarinnar
TENGT EFNI

Óðinn Bjarka spáir í 18. umferð Bestu deildarinnar


Bönnin bíta í Fram
Flestir spá markaleik enda er KR jú að fara að spila. Að auki vantar varnarmenn í Framliðið vegna leikbanna. Israel Garcia og Sigurjón Rúnarsson verða báðir í banni og einnig fyrrum leikmaður KR, Ægir Jarl Jónasson. Spennandi verður að sjá hvernig Fram glímir við þessi forföll.

Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, grýtti brúsa í vegg í sigrinum gegn ÍBV í Þjóðhátíðarleiknum á Hásteinsvelli og fékk fyrir það rautt spjald. Það er sjónarsviptir að hafa Rúnar ekki á hliðarlínunni gegn KR í þessum leik í kvöld en aðstoðarmaður hans Helgi Sigurðsson verður með stýrið.

En Kennie Chopart var alveg ákveðinn í að ná þessum leik og hann snýr aftur úr leikbanni og verður með Frömurum í kvöld.

Maðurinn með flautuna
Helgi Mikael dæmir stórleik Fram og KR
TENGT EFNI

Helgi Mikael dæmir stórleik Fram og KR


Sameiginleg byrjunarlið
Sameiginlegt byrjunarlið Fram og KR
TENGT EFNI

Sameiginlegt byrjunarlið Fram og KR


Upphitanir stuðningsmanna
Framarar verða með pallborðsumræður fyrir leikinn á Lambhagavellinum þar sem Mikel Nikulásson, Bogi Ágústsson, Ríkharður Daðason og Valtýr Björn Valtýsson rýna í leikinn með Gunnari Ormslev.

KR klúbburinn boðar upphitun stuðningsmanna á heimavelli, Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Rúta á leikinn leggur af stað í Úlfarsárdalinn 18:20.

Hitað upp í útvarpsþættinum:
Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Stefán Páls og Siggi Raggi


Kastljósið beinist að þessum:
Kæmi mjög á óvart ef Fram fengi að njóta krafta hans næsta sumar
TENGT EFNI

Kæmi mjög á óvart ef Fram fengi að njóta krafta hans næsta sumar


Bestur í júlí - Átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur frá Óskari
TENGT EFNI

Bestur í júlí - Átti svo sannarlega skilið að fá þennan lestur frá Óskari


Fyrri leikur liðanna á tímabilinu:
Fyrri leik liðanna lauk með 2-2 jafntefli þar sem Sigurjón Rúnarsson jafnaði metin fyrir Fram í lokin. Sigurjón er í banni í kvöld.

KR 2 - 2 Fram
0-1 Frederico Bello Saraiva ('41 )
1-1 Aron Sigurðarson ('45 )
2-1 Luke Morgan Conrad Rae ('83 )
2-2 Sigurjón Rúnarsson ('90 )
Lestu um leikinn
Sigurjón Rúnarsson verður í banni en hér er hann að glíma við Aron Sigurðarson.

Sigurjón Rúnarsson verður í banni en hér er hann að glíma við Aron Sigurðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Sigurðsson stýrir Fram frá hliðarlínunni í kvöld en Rúnar Kristinsson er í banni.

Helgi Sigurðsson stýrir Fram frá hliðarlínunni í kvöld en Rúnar Kristinsson er í banni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson og Gabríel Hrannar Eyjólfsson.

Óskar Hrafn Þorvaldsson og Gabríel Hrannar Eyjólfsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bogi Ágústsson verður á vellinum.

Bogi Ágústsson verður á vellinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Sigurðarson var leikmaður mánaðarins.

Aron Sigurðarson var leikmaður mánaðarins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Sigurðsson hefur verið funheitur.

Freyr Sigurðsson hefur verið funheitur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.18+4245
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik18+629
5Valur18-522
6ÍA18-622
7Keflavík18-622
8Stjarnan18-1021
9ÍBV18-917
10FH18-1017
11KA18-1215
12Þór18-2615
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.