Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 13. sæti

10.08.26

Spáin fyrir enska - 13. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við höldum áfram að opinbera sérstaka spá Fótbolta.net fyrir komandi keppnistímabil í ensku úrvalsdeildinni. Núna er það liðið sem er spáð 13. sæti en það er Crystal Palace.
Crystal Palace er að lifa ákveðna gullöld í sögu félagsins. Á síðustu tólf mánuðum vann Palace þrjá titla: Enska bikarinn, Samfélagsskjöldinn og Sambandsdeild Evrópu - og stuðningsmenn eru farnir að leyfa sér að dreyma enn stærra. Eftir áratug þar sem markmiðið var fyrst og fremst að halda sæti sínu í deildinni hefur Palace sýnt sig vera félag sem getur barist um titla og Evrópusæti.

Stærsta breytingin í sumar er þó brotthvarf Oliver Glasner, sem lagði grunninn að þessari velgengni. Í hans stað er kominn Frakkinn Pierre Sage, sem erfir lið fullt af hæfileikum en jafnframt miklar væntingar. Palace vill gera alvöru atlögu að Evrópudeildinni án þess að fórna stöðu sinni í ensku úrvalsdeildinni, en til þess þarf breiðari og öflugri leikmannahóp en á síðasta tímabili.

Félagið hefur á undanförnum árum verið eitt það snjallasta á félagaskiptamarkaðnum og fundið leikmenn sem hafa tekið gríðarlegum framförum á Selhurst Park. Nú þarf Palace að halda áfram á sömu braut. Með miklu leikjaálagi og fleiri keppnum verður lykilatriði að hitta vel í næstu kaupum ef liðið ætlar sér að festa sig enn frekar í sessi meðal öflugustu liða Englands.

Stjórinn: Pierre Sage stendur frammi fyrir því erfiða verkefni að taka við af Oliver Glasner, manninum sem leiddi Crystal Palace til þriggja titla á aðeins einu ári. Frakkinn kemur þó inn með sterka ferilskrá eftir að hafa stýrt Lens í annað sæti frönsku deildarinnar og til sigurs í franska bikarnum á síðasta tímabili. Sage vill, líkt og Glasner, byggja lið sitt upp í 3-4-3 leikkerfi með mikilli ákefð, skipulagi og árásargirni. Luis Enrique, stjóri PSG, hrósaði Lens sérstaklega á síðasta tímabili og sagði að ekkert lið hefði valdið sínu liði jafn miklum vandræðum.
Spáin fyrir enska - 13. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Hingað til hefur glugginn verið mjög rólegur hjá Palace og lítið að frétta.

Komnir:
Óscar Mingueza frá Celta Vigo - Á frjálsri sölu

Farnir:
Maxence Lacroix til Chelsea - 52 milljónir punda
Danny Imray til Wrexham - 5 milljónir punda

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 13. sæti

Mynd: Crystal Palace

Lykilmaður: Ismaila Sarr
Sarr átti besta tímabil ferils síns í Crystal Palace á síðasta ári og verður áfram stærsta sóknarvopn liðsins. Senegalinn skoraði 21 mark í öllum keppnum og varð fyrsti leikmaður Palace til að ná 20 marka múrnum á hæsta stigi síðan Andy Johnson gerði það tímabilið 2004/05. Sarr er nú á besta aldri, 28 ára gamall, og sameinar mikinn hraða, fjölhæfni og markanef. Hann er sérlega klókur í hreyfingum sínum án bolta og hefur einstakt lag á að finna hættuleg svæði í teignum.

Gaman að fylgjast með: Adam Wharton
Wharton er einfaldlega einn hæfileikaríkasti miðjumaður Englands. Þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára hefur hann fest sig í sessi sem lykilmaður hjá Crystal Palace og er orðinn einn eftirsóttasti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar. Leikskilningurinn, sendingagæðin og róin með boltann gera hann að afar sérstökum leikmanni og margir telja hann eiga framtíð fyrir sér hjá einhverjum af allra stærstu félögum Evrópu. Áhugi frá stórliðum á borð við Liverpool, Manchester United og fleiri enskum risum hefur verið viðvarandi og Palace gerir sér grein fyrir að erfitt gæti reynst að halda honum til lengri tíma. Það er svo sannarlega unun að horfa á hann spila.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Besta niðurstaðan er sú að Palace eigi fínt tímabil heima fyrir, verði um miðja deild en á sama tíma að liðið vinni Evrópudeildina. Versta mögulega niðurstaðan er sú að Palace nái ekki að fara langt í Evrópu og verði rétt fyrir ofan fallsvæði í ensku úrvalsdeildinni.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 13. sæti

Mynd: EPA

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. ?
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 13. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.