10.08.26 - 12:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hollenskt úrvalsdeildarfélag fylgdist með Ágústi Orra

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Útsendarar frá ónefndu hollensku úrvasldeildarfélagi mættu á Eikarvöllinn í Kópavogi í gær til að fylgjast með Ágústi Orra Þorsteinssyni leikmanni Breiðabliks gegn Val.
Ágúst hefur verið á blaði hjá erlendum félögum, meðal annars hjá svissnesku meisturunum í Thun og komu tilboð í hann frá Póllandi í vetur.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 Valur
Ágúst er sóknarmaður fæddur 2005, U21 landsliðsmaður, og er uppalinn hjá Breiðabliki. Hann hefur verið á mála hjá Malmö og Genoa á sínum ferli.
Ágúst var ekki með neina sýningu í gær, og enginn í Blikaliðinu, en hann fær reyndar fínustu einkunn á Flashscore fyrir frammistöðu sína. Hann bjó m.a. til eitt stórt færi fyrir samherja og lagði upp annað skotfæri. Valur vann leikinn, 1-3 urðu lokatölur.
Ágúst hefur skorað fimm mörk og lagt upp fjögur í 17 leikjum í Bestu deildinni í sumar.