10.08.26 - 12:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Skagamenn hafa skilað inn þriggja ára samningi Tryggva Hrafns (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var síðast hjá ÍA 2020.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn Haraldsson skrifaði í sumar undir samning við ÍA sem tekur gildi eftir tímabilið. Fóbolti.net greindi fyrst frá því 8. júlí. Hann verður samningslaus eftir tímabilið og mátti því ræða við önnur félög þegar sex mánuðir eða minna voru eftir af samningnum.
Rætt hefur verið um möguleikann á því að Tryggvi verði keyptur til ÍA strax í glugganum en einungis rúmir tveir sólarhringir eru eftir af honum og ólíklegt að eitthvað gerist úr þessu. Tryggvi sagði sjálfur í gær, eftir leikin gegn Breiðabliki, að hann búist við því að klára tímabilið hjá Val.

TENGT EFNI
Tryggvi Hrafn: Held það sé alveg klárt að ég klári tímabilið hér
Skagamaðurinn Tryggvi er að snúa aftur á Skagann í haust og hefur ÍA þegar skilað inn samningi hans til KSÍ.
Þar segir að samningur Tryggva við félagið taki gildi 1. desember og renni út 30. nóvember 2029. Tryggvi gerir því þriggja ára samning við uppeldisfélagið.
Tryggvi átti góðan leik gegn Blikum í gær, skoraði og lagði upp í 1-3 útisigri. Tryggvi hefur skorað átta mörk og lagt upp sjö í Bestu deildinni í sumar og skoraði öll þrjú mörk Vals í Evrópueinvíginu gegn Zrinjski sem Valur vann.