Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 18. september 2022 09:40
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski þakklátur stuðningsmönnum Bayern
Lewandowski er kominn með átta mörk og tvær stoðsendingar í sex leikjum í La Liga.
Lewandowski er kominn með átta mörk og tvær stoðsendingar í sex leikjum í La Liga.
Mynd: EPA

Robert Lewandowski mætti aftur á Allianz Arena þegar Barcelona heimsótti FC Bayern í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni.


Bayern vann leikinn 2-0 en Börsungar fengu urmul tækifæra til að skora og klúðraði Lewandowski nokkrum dauðafærum gegn sínum fyrrum liðsfélögum.

Stuðningsmenn Bayern tóku vel á móti Lewandowski við endurkomuna þrátt fyrir opinbert rifrildi hans við stjórn félagsins í sumar. Þar gerði pólski markaskorarinn allt í sínu valdi til að vera seldur frá Bayern.

„Ég er mjög þakklátur stuðningsmönnunum í München fyrir hvernig þeir tóku á móti mér. Þeir sýndu mér virðingu, þetta var mjög fallegt af þeim og mikilvægt fyrir mig. Ég var í München í átta ár, ekki tvö eða þrjú. Það er ekki hægt að gleyma því," sagði Lewandowski.

Lewandowski er 34 ára gamall og er búinn að skora 11 mörk í 8 keppnisleikjum hjá Barca. Hann skoraði 344 í 375 leikjum með Bayern, ótrúlegar tölur.


Athugasemdir
banner
banner
banner