Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 18. október 2019 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: thorsport 
Sjáðu viðtal við Palla Gísla eftir undirskriftina
Mynd: thorsport
Páll Viðar Gíslason skrifaði undir þriggja ára samning sem aðalþjálfari knattspyrnudeildar Þórs í dag.

Páll Viðar, eða Palli Gísla eins og hann er gjarnan kallaður, býr yfir mikilli reynslu frá Akureyri eftir tíma sinn þar bæði sem leikmaður og þjálfari til margra ára.

Hann var að sjálfsögðu tekinn í viðtal af thorsport eftir undirskriftina og er hægt að sjá viðtalið hér fyrir neðan.

„Þetta eru sérstakar aðstæður sem ég er í núna og á að teljast nýráðinn og nýr en mér finnst ég aldrei hafa farið neitt þannig að þetta er skrítin tilfinning," sagði Palli meðal annars.


Athugasemdir
banner
banner