Cristiano Ronaldo og Lionel Messi mættust líklega í síðasta sinn á ferlinum er þeir áttust við í Sádi-Arabíu í kvöld.
Þessir tveir leikmenn eru tveir af allra bestu leikmönnum í sögu fótboltans og í raun ótrúlegt að upplifa þá tíma að sjá þá tvo etja kappi við hvorn annan öll þessi ár í La Liga.
Virðingin hefur alltaf verið gagnkvæm hjá Messi og Ronaldo en félagarnir heilsuðust fyrir leik PSG og stjörnuliðs Al-Hilal og Al-Nassr í kvöld og föðmuðust, væntanlega vitandi það að þetta væri þeirra síðasta barátta á vellinum.
Messi birti myndband af sér og Ronaldo í faðmlögum á Instagram en myndbandið fylgir fréttinni. Fallegt að sjá þetta í síðasta dansinum.
Messi posts a video of him and Ronaldo on his Instagram story: pic.twitter.com/yUjkKep0yy
— J. (@Messilizer) January 19, 2023
Cristiano Ronaldo and Lionel Messi embracing before a match for what might be the last time.
— ESPN FC (@ESPNFC) January 19, 2023
Who's cutting onions? ????
(via benblack/Instagram) pic.twitter.com/cLHlKXFXar
Athugasemdir