Davíð Þór: Mig langar meira til Færeyja
Auglýsing

Davíð Þór er 1/8 Færeyingur

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Davíð Þór er 1/8 Færeyingur

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH gerði 2-2 jafntefli við Víking í kvöld.
„Við ætluðum okkur að sjálfsögðu að vinna leikinn og þurftum á því að halda, þannig að þetta eru mikil vonbrigði,“ sagði Davíð daufur í dálkinn eftir leikinn. Gunnar Jarl dæmdi tvær vítaspyrnur og stóð ekki á svörum hjá Davíð þegar hann var spurður út í þá dóma. „Mér fannst vítið sem Víkingur fékk ekki víti þar sem Kassim fer í boltann en mér fannst seinna vítið vera pjúra víti.“
Davíð segir FH ekki geta verið að hugsa um efsta sætið að þessu sinni og að það verði að koma í ljós hvort liðið sé komið of langt á eftir. En þó hann sagði liðið þurfa að hugsa bara um næsta leik var hann spurður út í drátt dagsins: FH mætir annað hvort Víkingi frá Færeyjum eða Trepça '89 frá Kosóvó í Evrópukeppninni. „Mig langar að sjálfsögðu meira til Færeyja enda er ég 1/8 Færeyingur,“ sagði Davíð með bros á vör.