Fotbolti.net
19.06.26 - 11:53
Elvar Geir Magnússon

Ein uppáhalds stund Kane að syngja Wonderwall með stúkunni

Ein uppáhalds stund Kane að syngja Wonderwall með stúkunni
Canon

Mynd: EPA

Harry Kane, fyrirliði Englands, segir að það sé ein sín uppáhalds stund í landsliðstreyjunni að syngja 'Wonderwall' með stuðningsmönnum eftir að hafa sigrað Króatíu 4-2 í vikunni.

Umræða er í gangi um hvort Kane sé einn besti sóknarmaður enska landsliðsins frá upphafi en hann skoraði tvö mörk í leiknum gegn Króatíu.

Eftir leikinn fagnaði Kane og aðrir leikmenn fyrir framan stuðningsmennina í stúkunni og sungu Oasis slagarann Wonderwall frá 1995.

„Þetta var ein mín uppáhalds stund með enska landsliðinu, sérstaklega þar sem þetta var á stórmóti. Það er bara einn leikur búinn og við höldum okkur á jörðinni en þessi tenging okkar við stuðningsmenn... við vitum hversu miklu þetta skiptir fyrir þá," segir Kane.

Næsti leikur Englendinga er gegn Ganverjum á þriðjudag.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.