Fotbolti.net
19.06.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fór yfir umdeildu atriðin á Greifavellinum - Mistök og frábær ákvörðun

Aukaspyrna dæmd og mark KA fékk ekki að telja.

Aukaspyrna dæmd og mark KA fékk ekki að telja.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Fótbolti.net ræddi við Þórodd Hjaltalín, dómarastjóra KSÍ, um vafaatriðin í 10. umferð Bestu deildarinnar.

Farið var yfir þau sem hafa helst verið milli tannanna á fólki og var sérstaklega farið yfir tvö atvik úr leik KA og Fram sem fram fór á mánudagskvöld. Elísa Ingi Árnason dæmdi leikinn.
Mistök að flauta brot
„Elías Ingi tekur ranga ákvörðun, metur þetta vitlaust. Það verður að segjast eins og er að það er enginn KA-maður sem brýtur á markmanninum. Þetta er röng ákvörðun. Hann er að flauta á atvik sem gerist áður en Birgir fær boltann, dæmir á að KA-maðurinn sem stendur fyrir framan markmanninn haldi í hann og hindri hann í að komast út í boltann. Ég var eftirliti á leiknum og eins og ég sagði við Elías þá get ég ekki séð að það sé neitt leikbrot og Elías er alveg sammála því þegar hann sér þetta aftur, lítur öðruvísi út en upplifun hans var. Það var ekkert leikbrot þarna," sagði Þóroddur.

Frábær ákvörðun að dæma víti
Í sama leik var dæmd vítaspyrna eftir að Freyr Sigurðsson átti skot sem Steinþór Már Auðunsson í marki KA varði. Birgir tæklaði þá í Frey eftir að hann náði skotinu og féll Freyr við.

„Eina sem er rangt í þessu atviki er að það vantar gult spjald á Birgi. Tæklingin er skeytingarlaus," segir Þóroddur og nefnir svo þrjár gerðir af brotum.

„Við erum með 'careless' (í. ógætilegt), sem þýðir aukaspyrna og ekkert meira, 'reckless' (í. skeytingarlaust) sem er aukaspyrna og gult spjald, og svo erum við með 'serious foul play' sem er aukaspyrna og rautt spjald. Ef að sóknarmaður nær skoti á markið en það er svo brotið á honum í kjölfarið eða nánast í sömu andrá, en brotið sem slíkt er bara 'careless' þá er það ekki nóg til að dæma vítaspyrnu. En ef brotið er skeytingarlaust, eins og þetta er, þá verður að dæma víti, ef brotið er svona gróft þá er það vítaspyrna og mér finnst Elli gera frábærlega þar, tæklingin er mjög agressíf."

Þannig það hefði í þessu atviki í raun ekki verið hægt að dæma víti og sleppa gulu spjaldi?

„Nei, það eru eiginlega mistökin sem gerast. Elías hefði þurft að áminna leikmanninn, en það flokkast ekki undir stór mistök. Það var rétt að dæma vítaspyrnu og hefði átt að áminna leikmanninn."

En ef skotið hefði farið framhjá?

„Ef skotið hefði farið beint framhjá, leikmaðurinn fengið allan frið í heiminum til þess að skjóta, en brotið er samt áfram skeytingarlaust, þá fer það eftir því hvar boltinn er þegar tæklingin á sér stað. Ef boltinn er ekki farinn út af þá er það vítaspyrna og gult spjald. En ef boltinn er farinn framhjá þá er ekki hægt að dæma vítaspyrnu, en hægt að áminna. Þú getur ekki framið leikbrot ef boltinn er ekki í leik, en þú getur fengið agarefsingu. Boltinn er úr leik um leið og hann fer út fyrir völlinn."

Fréttin er hluti af lengri grein sem birtist fyrr í gær 17. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Fréttin í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.
Elías Ingi.

Elías Ingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Birgir að koma boltanum í netið.

Birgir að koma boltanum í netið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.