Fotbolti.net
19.06.26 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hve margir úr Bestu deildinni gætu spilað á næsta HM?

Alexander Rafn Pálmason og Amin Cosic fagna marki.

Alexander Rafn Pálmason og Amin Cosic fagna marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Núna á dögunum var því velt upp í pistli hér á Fótbolta.net hvernig landslið Ísland gæti litið út á HM 2030, ef við komumst þangað.

En hversu margir sem eru að spila í Bestu deildinni núna væru í því liði?
Miðað við upptalninguna í pistlinum væru tveir úr Bestu deildinni í liðinu, einn í miðverði og hinn á hægri kanti.

Miðvörður: Davíð Helgi Aronsson (Keflavík/Víkingur R.)
Hann vakti mikla á láni með Njarðvík í Lengjudeildinni í fyrra og er að vekja enn meiri athygli núna á láni hjá Keflavík. Hann hefur bæði spilað sem miðvörður og miðjumaður fyrir Keflavík en framtíðarstaðan hans er líklega í hjarta varnarinnar. Hann er stór og sterkur en þarf kannski að bæta sig aðeins í að halda einbeitingu yfir allan leikinn. Talað hefur verið um að hann verði mögulega bara seldur út áður en hann snýr aftur í Víking eftir tímabilið. Hann verður 23 ára þegar mótið fer fram 2030.

Hægri kantur: Alexander Rafn Pálmason (KR/Nordsjælland)
Stillum upp í 4-4-2 og hægra megin er eitt mesta efni sem hefur komið upp í íslenskum fótbolta. Alexander Rafn varð haustið 2024 yngsti leikmaður í sögu efstu deildar og vorið 2025 varð hann sá yngsti til að byrja leik og skora í deildinni. Hann hefur í sumar vakið mikla athygli fyrir þroskaða frammistöðu sína með KR en það er búið að selja hann til danska félagsins Nordsjælland þar sem hann mun þróa leik sinn næstu árin. Alexander Rafn verður 20 ára þegar mótið 2030 fer fram.

Svo voru nokkrir aðrir úr Bestu deildinni nálægt því að vera í liðinu.

Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 17. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.

Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Hvernig gæti Ísland litið út á næsta HM?
TENGT EFNI

Hvernig gæti Ísland litið út á næsta HM?

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Davíð Helgi Aronsson.

Davíð Helgi Aronsson.

Canon

Mynd: Keflavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.