Fotbolti.net
19.06.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Sá sneggsti á HM

Jordan Bos á hraðasta sprett HM.

Jordan Bos á hraðasta sprett HM.

Canon

Mynd: EPA

FIFA hefur opinberað hvaða leikmenn á HM hafa átt hröðustu sprettina á mótinu en fáir bjuggust við að sjá það nafn sem er á toppi listans.

Sneggsti leikmaðurinn á HM hingað til er ástralski varnarmaðurinn Jordan Bos sem spilar með Feyenoord í Hollandi. Vinstri bakvörðurinn náði 36,7 km hraða í 2-0 sigrinum gegn Tyrklandi í fyrstu umferð.

Einu sem komast nálægt honum eru tveir leikmenn Manchester City; Erling Haaland í Noregi og Abdukodir Khusanov í Úsbekistan sem náðu nálægt 36,5 km/h.

Kylian Mbappe, Son Heung-min og Pedro Neto eru meðal snöggra leikmanna sem eru neðar á listanum.
Það kemur þeim sem fylgjast með hollensku deildinni kannski ekki á óvart að hinn 23 ára Bos toppi listann. Hann átti virkilega gott tímabil með Feyenoord, skoraði fjögur mörk og átti níu stoðsendingar.

Hann hjálpaði Feyenoord að enda í öðru sæti og komast í Meistaradeildina.

Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.