Vongóðir um að ná samkomulagi við Liverpool

Curtis Jones.

Mynd: EPA

Curtis Jones.

Mynd: EPA
La Gazzetta dello Sport greinir frá því að Liverpool neiti að lækka 30 milljóna evra verðmiðann á Curtis Jones en ítalska félagið Inter sé þó enn vongott um að ná samkomulagi við félagið.
Inter vill fá enska miðjumanninn og hann hefur áhuga á því að fara til Mílanóborgar.

Gazzettan segir að Inter hafi upphaflega sent 20 milljóna evra boð í þennan 25 ára leikmann.
Samningur Jones rennur út eftir ár og sú staðreynd eykur vonir Inter um að Liverpool muni á endanum slaka á kröfum sínum.
Inter er einnig að reyna að fá Oumar Solet varnarmann Udinese og er að landa Marco Palestra sem hefur spilað sem bakvörður og vængbakvörður fyrir Atalanta.